Caretronic er fyrirtæki frá Slóveníu sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á hjúkrunarkallkerfum og rafrænum hjúkrunarlausnum. Fyrirtækið var stofnað árið 1962 og er í um 60 löndum í mörgum heimsálfum.
 
Caretronic er eitt fárra fyrirtækja sem eru með hjúkrnarkallkerfi og uppfylla stranga gæðavottun í Evrópu sem kallast: DIN VDE 0834. Það tryggir gæði og öryggi þeirra sem notast við Caretronic.
 
Meðal lausna sem Caretronic býður upp á eru stafrænar lausnir fyrir hjúkrunarheimili og spítala. Þeir bjóða upp á fallvörn fyrir aldraða, eftirlit með lífsmörkum, snjallkerfi með skynjara, úr sem sýna hvar einstaklingar eru, loftlausnir til að meta hreyfingu, nætureftirlit og fl.

 

Sjá heimasíðu Caretronic