Paramed
Flutningsbekkur Rafmagns
Lýsing á Vöru
Lýsing á Vöru
Tvískiptur rafdrifinn flutningsbekkur frá hinum virta framleiðanda Novak. Bæði er hægt að fá bekkinn tví- og fjórskiptann. Bekkurinn gengur fyrir batteríum og er ekki settur í samband, en hvert batter dugar í 3-6 daga eftir því hversu mikil notkunin er. Aðeins þarf eitt handtak til að skipta um batterí og staða batterís er auðsjáanleg á fjarstýringu.
Handstýring er fyrir stillingar og hægt er að lækka bekkinn í 49 cm. og hækka í 89cm. hæð. Höfuðgafl fer hæst upp í 85° og auðvelt er að setja bekkinn í trendelenburg stöðu.
- Burðargeta er 320 kg.
- Heildarlengd er 219cm
- Hægt að fá í tveimur breiddum 65 cm eða 75 cm
- Dýnustærð er 200cm á lengd og er hægt að fá 8cm. og 10cm dýnu.
- Keyrsluhandföng að framan og aftan. Auðvelt er fyrir einn starfsmann að flytja sjúkling.
- Hefur fengið alþjóðleg verðlaun fyrir góða hönnun, þægindi og gæði.
Hægt er að fá ýmsa aukahluti sem fylgja bekknum, eins og t.d. fimmta hjólið sem auðveldar við hliðarfærslur. Vökvastand, læsingu á öllum hliðum, auka batterí, hleðslutæki og fl.
Sjá heimasíðu Novak sem sem framleiðir STRX2-E bekkina.
Skilmálar
Skilmálar
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
