Micro Nálar 33G

Venjulegt verð
7.980 kr
Útsöluverð
7.980 kr
Venjulegt verð
Skattur innifalinn.
Lýsing á Vöru

Aesthetic Group í Frakklandi framleiðir gæðavörur fyrir lækna og heilbrigðisstarfsfólk. Sem dæmi um vörur eru t.d. nálar og kanúlur sem eru töluvert notaðar hér á landi. 33G nálin er grennsta nálin sem er hægt að fá hjá Aesthetic Group og hentar hún t.d. í toxin (botox) meðferðir, mýkri fylliefni og önnur efni sem krefjast nákvæmni við inngjöf. Hægt er að fá nálarnar í 4mm, 8mm og 13mm á lengd.

 

Sérstaða nálanna er að þær eru úr gæða stáli svo hægt er að stinga í mörg skipti án þess að það hafi áhrif á gæði nálarinnar, líkt og gerist með margar aðrar nálar. Oddurinn er sérstaklega beittur sem minnkar sársauka þegar stungið er. Einnig er holrúmið inn í nálinni extra breitt svo auðveldara er að sprauta efni í gegnum granna nálina, og gerir það notandanum kleift að nota mjög granna nál en hefði ella þurft að nota breiðari nál.

Skoða allar upplýsingar
Micro Nálar 33G