Paramed
Skoðunarbekkur S-línan
Lýsing á Vöru
Lýsing á Vöru
Tvískiptur skoðunarbekkur sem hentar vel fyrir margar tegundir af meðferðum og skoðunum. Bekkurinn hefur fengið verðlaun fyrir hönnun og mögulegt er að fá margar útfærslur og aukahluti.
S-Línan er einföld og með höfuðstuðningi sem er 45 cm á hæð. Hægt er að fá bekkinn rafdrifinn og með gaspumpu sem er stýrð með fótum. Einnig er gott úrval aukahluta, eins og úrtak úr bekk fyrir hjartaómun, PVC hlíf fyrir höfuð og fætur og margt fleira. Gott úrval af litum á áklæði sem er úr hágæða leðri sem er vatns- og eldþolið.
- Hámarksþyngd 250 kg
- Hæð 47 - 94 cm
- Hægt að fá í tveimur breiddum 65 cm eða 75 cm
- Heildarlengd 2050 mm
- Hægt að fá í allt að 30 litaútfærslum
- Hefur fengið alþjóðleg verðlaun fyrir góða hönnun, þægindi og gæði.
- Skoðunarbekkurinn er mjög stöðugur við notkun en auðvelt að færa hann til þar sem bekkurinn kemur á hjólum sem hægt er að nota þegar færa á bekkinn.
Hægt er að fá ýmsar aðrar útfærslur af bekkjum, sjá SL, SXL, S3 og S4 línurnar.