YourBoots 8.0 SPORT

Venjulegt verð
149.900 kr
Útsöluverð
149.900 kr
Venjulegt verð
Skattur innifalinn.
Lýsing á Vöru

YourBoots er Danskt fyrirtæki sem framleiðir vörur sem eru ætlaðar fyrir endurheimt líkamans. Hulsurnar eru hannaðar svo þær veiti þrýsting sem léttir meðal annars á vöðvum sem hjálpar til við endurheimt íþróttafólks, sem meðferð við sogæðabólgum, fótapirringi og bráðabólgum í neðri útlimum eftir áverka.

Með 8 hólfa YourBoots SPORT tækinu fylgja tvær fótahulsur með sem ná yfir allan fótlegginn og veitir svokallað bylgjuflæði (Dynamic Flow). SPORT tækið gengur fyrir batteríi ásamt rafmagni. Tækið býður upp á 6 mismunandi meðferðarstillingar. Að auki er hægt er að stjórna því í hvaða hólf lofti er veitt í meðan á meðferð stendur. YourBoots taska fylgir ásamt fjarstýringu. Tækið er með BlueTooth þannig að hægt er að tengja það við app í snjallsíma sem hægt er að sækja í Appstore eða Playstore.

 

Meðferðarstillingar:

Stilling A: (Nudd) Þrýstingur frá fæti og í átt að hjarta, eitt hólf í einu.
Stilling B: (Sogæðameðferð) þrýstingur frá fæti í átt að hjarta. Þrýstingi er haldið þar
til öll hólf eru fyllt.
Stilling C: (Tvöfalt nudd) þrýstingur frá fæti í átt að hjarta. Tvö hólf fyllast
samtímis.
Stilling D: (Fullur þrýstingur) Fullur þrýstingur í öll hólf samtímis og aflétt á sama
tíma.
Stilling E: (Samblöndun stillinga B og C)
Stilling F: (Samblöndun stillinga A, C og D) 

Stærð á stígvélum sem í boði eru:

Stærð 1: Passar vanalega fyrir einstaklinga milli 150 og 170 cm á hæð. Ummál læra 70 cm. 

Stærð 2: Passar vanalega fyrir einstaklinga milli 170 og 190 á hæð. Ummál læra 73 cm.

Stærð 3: Passar vanalega fyrir einstaklinga milli 190 og 205 cm á hæð. Ummál læra 74 cm.

 

Tæknilegar upplýsingar:

Stærð tækis: 28x9x9 cm.
Þyngd: 1,134 kg
Inntaksspenna: 220V/50Hz.
Skjár: Snertiskjár
Meðferðarlengd: 1-90 mínútur.
Þrýstingur: 30-250 mmHg. 

Ráðleggingar varðandi notkun:

Notað á bert hold eða í gegnum þunnan fatnað.

Meðferðartími er einstaklingsbundinn. Það getur líka verið dagamunur á því hversu mikinn þrýsting og tímalengd líkaminn þarf.

Almenna reglan er að sú að því hærri þrýstingi sem er beitt, því styttri er tíminn sem notandi þolir. Eftirfarandi ráðleggingar eru eingöngu leiðbeinandi og hver sem er getur sett saman sína eigin meðferðaráætlun.

 

Notkun:
Tímalengd: 30 - 90 mín. 1-2 sinnum á dag.
Þrýstingur: 150 - 240 mmHg.

Til þess að ná sem mestum áhrifum er hægt að byrja á 30 mínútum á stillingu B (eitilfrárennsli) og taka í kjölfarið 20 - 30 mínútur á stillingu A (nudd) eða 20 - 30 mínútur á stillingu D (full vöðvaslakandi) Það geta komið dagar þar sem notkunarþörfin er meiri.

Þegar einstaklingur hefur æfingar á ný eftir meiðsli ætti að lækka þrýstinginn miðað við það sem notað er venjulega. Hægt er t.d. að byrja á stillingu B við lágan þrýsting (30-150 mmHg) og örvað frásog og blóðrásina sem líkaminn notar til viðgerðar. Eftir 5 - 10 mínútur er hægt að aftengja hólfið/hólfin sem þrýsta á meiðslasvæðið og ljúka meðferðartímanum á þeim hlutum fótleggjanna sem ekki eru skaðaðir. Skynsamlegt getur verið að ráðfæra stig við sjúkraþjálfara.

Sennilegt er að einstaklingar finni fyrir þorsta og slökun eftir notkun tækisins. Það er fullkomlega eðlilegt.

Skoða allar upplýsingar
YourBoots 8.0 SPORT
YourBoots 8.0 SPORT
YourBoots 8.0 SPORT
YourBoots 8.0 SPORT
YourBoots 8.0 SPORT