Lec Medical
Lec Medical er breskur framleiðandi kæliskápa fyrir heilbrigðisgeirann, t.d. apótek, sjúkradeildir og rannsóknastofur. Saga Lec nær aftur til ársins 1942 þegar Longford Engineering Company (L.e.c.) var stofnað í Bognor Regis á Englandi, og frá árinu 2006 hefur Lec tilheyrt Glen Dimplex-samstæðunni.
Vöruúrvalið nær til frístandandi skápa, skápa undir borð og borðskápa, auk frysta og fylgihluta til hitastigsvöktunar.
Vörur frá Lec Medical hjá Paramed
Paramed selur lyfja- og lækningakæliskápa frá Lec Medical, bæði 47 lítra og 158 lítra.
